Fréttir

Kjörnefnd auglýsir

16.2.2024

Á hverju ári sameina fjölmargir iðjuþjálfar krafta sína og taka að sér trúnaðarstörf í þágu félagsins og fyrir það erum við afar þakklát. Starfsemi og framþróun Iðjuþjálfafélags Íslands byggir á virkri þátttöku félagsfólks. Þú getur haft áhrif með því að bjóða þig fram. Vertu með og láttu í þér heyra!

Kosið verður og skipað í stjórnir og nefndir á aðalfundi IÞÍ sem ráðgerður er þann 20. mars næstkomandi í Borgartúni 27 og í fjarfundi. Kjörtímabil fulltrúa er tvö ár nema annað sé tekið fram. Helstu upplýsingar um hlutverk og störf nefnda má finna í lögum félagsins (www.ii.is) og umfjöllun um starfsemi á innri vef heimasíðunnar. Einnig er velkomið að hafa samband við formann á thoraleo@bhm.is ef nánari upplýsinga er þörf. Tekið skal fram að aðalmenn og varamenn sem bjóða sig fram í stjórn IÞÍ þurfa að hafa fulla aðild (stéttarfélagsaðild) að félaginu.

Eftirtalin sæti í nefndir og stjórnir eru laus:

· Stjórn IÞÍ: Tveir aðalmenn, einn varamaður, einn aðalmaður til eins árs

· Fræðslunefnd: Þrír fulltrúar

· Ritnefnd: Ritstjóri og þrír fulltrúar

· Fræðileg ritstjórn Iðjuþjálfans: Tveir fulltrúar (skipaðir af stjórn IÞÍ)

· Siðanefnd: Einn aðalfulltrúi, tveir varafulltrúar (skipaðir af stjórn IÞÍ)

· Stjórn Fagþróunarsjóðs: Einn fulltrúi til þriggja ára (skipaður af stjórn IÞÍ)

· Skoðunarmenn reikninga: Tveir skoðunarmenn

· Fulltrúi IÞÍ í Öldrunarráði Íslands: Einn aðalfulltrúi

Frestur fyrir framboð í trúnaðarstörf rennur út tveimur vikum fyrir aðalfund. Þau sem hafa í hyggju að bjóða fram krafta sína eru því beðin um að láta undirritaða vita fyrir 6. mars næstkomandi.

Bestu kveðjur,

f. h. kjörnefndar IÞÍ 2024

Ásbjörg Magnúsdóttir

asbjorg.magnusdottir@heilsugaeslan.is